Þessi síða hefur verið prófarkalesin
PÍSLARÞANKAR SIGGA SÍFULLA.
Jeg þekkt’ana fyrst, þessa eldheitu ást.
Á einu svolitlu “balli”.
Jeg var þó svo gætinn að varla það sást
Að væri jeg ástsjúkur “tralli”;
En stuttur leið tími uns stillingin brást
Og stóð jeg í ástmála “ralli”.
Á einu svolitlu “balli”.
Jeg var þó svo gætinn að varla það sást
Að væri jeg ástsjúkur “tralli”;
En stuttur leið tími uns stillingin brást
Og stóð jeg í ástmála “ralli”.
Jeg slæptist á götunum kvöld eptir kvöld,
En kom ekki sjerlega víða.
Mjer fannst sem að lifði jeg öld eptir öld
Og ætti við mikið að stríða,
Því ástin og hjarta mitt ei voru köld
— Hún átti þau bæði, hún Fríða.
En kom ekki sjerlega víða.
Mjer fannst sem að lifði jeg öld eptir öld
Og ætti við mikið að stríða,
Því ástin og hjarta mitt ei voru köld
— Hún átti þau bæði, hún Fríða.
Jeg komst loks í skotfæri, kvöld eitt, um síð,
Og kætin þá brann mjer í hjarta.
Hún vakti þá alein, svo barnslega blíð,
Með brúnina hrafntinnu svarta.
Og kætin þá brann mjer í hjarta.
Hún vakti þá alein, svo barnslega blíð,
Með brúnina hrafntinnu svarta.
—25—