Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/31

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

Og enn var hún töfrandi, indæl og fríð,
Með ennið sitt stóra og bjarta.

Jeg gekk fyrir gluggann, og svanni það sá,
Og setti því hönd fyrir auga.
Jeg sá henni eitthvað svo illa við brá,
Sem úti að hræddist hún drauga.
Jeg hneigði mig kurteis og þýðlega þá;
Og þá fjekk jeg vingjarnlegt auga.

Og glugganum fjarri jeg stundarkorn stóð;
Hún stóð líka—eins og í draumi.
Í kinnunum iðaði bál eða blóð,
Sem bærðist af innvortis straumi.
Að húsinu bráðlega aptur jeg óð
Með ástina og kjarkinn í taumi.

Mjer fannst að jeg þyrfti að hitta þar hrund.
Jeg hafði víst óskað þess lengi.
Jeg hjelt að það væri nú heppileg stund,
Að heyra hver andsvör jeg fengi.
Mjer fannst jeg nú hafa svo ljettúðga lund,
Jeg lifði þá, hvernig sem gengi.

Jeg stoltur en feiminn í fyrstunni var;
Mjer fannst ekkert smálegt að vinna.

—26—