Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/32

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

En djarflega erindið upp jeg þó bar,
Sem orðrjett má hjer ekki finna.
Jeg heimtaði’ ’ún gæfi mjer heppilegt svar,
Jeg hjelt ’henni bær’ ekki minna.

Hún varð bara hissa og vafðist um mál;
Hún viss’ ekki hvað skyldi segja.
Hún hjelt víst jeg færi með hræsn’ eða tál
Og hentugast leit því að þegja.
Jeg vild’ ekki þvinga’ hennar saklausu sál,
Og sagðist af nóttina heyja.

En þá færðist yfir mig andvöku þraut,
Sem ætlað’ ei frá mjer að líða,
Jeg öskraði rjett eins og ilskufullt naut,
Svo erfitt mjer veittist að bíða.
Um dagmála-bilið, sem hæst er jeg hraut,
Hún hnippt’ í mig hlæjand’, hún Fríða.

Hún rjetti mjer snoturt úr barminum blað,
Fór burtu, en kvaddi mig eigi.
Jeg leitaði skjálfandi efninu að,
Og átta mig loksins á nei-i.
Það þarf ekki langorða lýsing um það,
Mjer líður ei vel frá þeim degi.

—27—