Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/34

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

VORNÓTT.


Hvert ertu liðin, ljúfa æsku stund?
Jeg lít ei framar þína sólskinsdaga,
Er gætti’ eg lamba í laufi skrýddum haga
Og aleinn vakti, er aðrir festu blund.
Jeg var þá barn, og lömbum smáum líkur,
Mjer leiddist ekk’ að ver’ í þeirra hóp;
Jeg söng og hló, af sælu og gleði ríkur,
Jeg sat og stóð, jeg læddist, gekk og hljóp.

Hví ertu horfin? — horfin langt á braut,
Og hrifin burt, sem strá, er hrekur straumur,
Og gleymd og týnd, sem gamall sæludraumur —
Hví fæ jeg ekk’ að hvíla við þitt skaut?
Hví læturð’ aldrei engilskinið bjarta
Um angurstárum sollið auga slá?
Hví sendirð’ aldrei særðu unglings hjarta
Einn sólskinsdag, að þerra vota brá ?

—29—