Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/35

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Nei — þú ert burtu, blessuð æskan mín,
Og alt er horfið — horfið alt, sem kætir;
En aptur komið ótalmargt, sem grætir.
Jeg aðeins lít nú apturábak til þín:
Og enn þá er þar alt í sama ljóma,
Og ekki neinum tilbreytingum háð.
Jeg enn þar lifi, eins og rós í blóma,
Sem er að teiga silfur-daggar-gráð.

Því enn jeg vaki einn um nætur stund
Og er að vonast eptir sólar-roða;
Og ennþá sje jeg dagsins fyrirboða
Í ljósum geislum líða yfir grund.
Og ennþá sje jeg fjalla brúnir bláar,
Sem bíða líka eptir morgunsól;
Og kringum bæinn brekkur þekk’ eg háar,
Sem bjuggu mínum æskustöðvur skjól.

Og þar á bænum á jeg heima enn —
Jeg á þar bæði föður minn og móður,
Og mínar systur á jeg þar og bróður,
Og ýmsa fleiri forna vandamenn.
Nei, það er liðið! — Faðir minn og móðir
Í myrkvar grafir hafa bústað flutt.
Og enga systir á jeg þar nje bróðir.
Mitt æskulif er horfið. — Það var stutt!
1895.

——