Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/36

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

MAGNÚS FINNSSON.
DÁINN 8. FEBR. 1895.[1]

[Sungið við jarðarför hans í Dómkirkjunni.]


Völt er lífsins von og yndi;
Vorsins þagnar blíða raust,
Áfram líður alt í skyndi,
Eptir sumar kemur haust;
Svo er vetrar-hörku hríð,
Heljar kuldi, böl og stríð,
Langar nætur, dimmir dagar,
Drottins ráð því svona hagar.

Óðum samt þeir dagar dvína,
Dregur fram að hinstu nótt,
Lífs má sól ei lengur skína,
Loksins verður kyrt og hljótt.
Hann er látinn! Hvílíkt skarð
——————
  1. ↑ Sjerprentað í Reykjavík 1895.

—31—