Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/37

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

Heimilinu þetta varð.
Harmi lostin hjörtun þreyja,
Hvílík sæla’ er þó að deyja.

Mitt í vetrar stormum stríðum
Stríddir þú við dauðans jel,
Móti þungum heljar hríðum
Helgum krapti barðist vel.
Dauðinn vann, en líf þú ljezt,
Líknin guðs því áleit bezt
Þreytta sál við þraut að skilja
— Það er skeð að drottins vilja.

Þungir eru drottins dómar;
Dapurt ómar sorgar lag,
Kuldalega klukkan hljómar
Kveðju látins, þennan dag.
Sárt er vin að sjá á bak,
Sárt er lífsins andartak
Þegar ástar böndin bresta;
Buga mun þá sorgin flesta.

Brúðir þín í síðsta sinni
Sendir hjartans kveðju þjer;
Grátin börn við grafar mynni

—32—