Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Góðan föður signa hjer;
Aldin móðir, upp í sveit,
Ei þó líti þennan reit,
Söknuð hlaðin sárt má kveina
Soninn — því hún missti — eina.
Vinir hryggir við þig skilja,
Vökva leiðið þakkar tár;
Minning þína’ ei moldir hylja,
Mörg hún hjá oss lifir ár.
Heimsins þótt ei ættir auð
Ekki var þín sálin snauð,
Snauðra böl þú bæta vildir —
Birgðum auðs það meira gildir.
Vökva leiðið þakkar tár;
Minning þína’ ei moldir hylja,
Mörg hún hjá oss lifir ár.
Heimsins þótt ei ættir auð
Ekki var þín sálin snauð,
Snauðra böl þú bæta vildir —
Birgðum auðs það meira gildir.
Bautastein þjer búi tárin
Blessi drottinn þína gröf.
Burtu líða angurs árin
— Ekkert jarðneskt hefur töf. —
Guð mun hjartans græða sár,
Grátendanna þerrra tár.
Vorsól hlý má hjarnið bræða,
Heilög trúin lífið glæða.
1895.
Blessi drottinn þína gröf.
Burtu líða angurs árin
— Ekkert jarðneskt hefur töf. —
Guð mun hjartans græða sár,
Grátendanna þerrra tár.
Vorsól hlý má hjarnið bræða,
Heilög trúin lífið glæða.
1895.
—33—
Fölvar Rósir III.