Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/39

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

BRENNUMÁL.


[Álfur Magnússon stud. art. gisti á Hotel Isafjord um jólin 1895; höfundurinn átti þar þá heima. Á Jóladagskvöldið var þar dans og drykkja fram á nótt, en morguninn eptir kom eldur upp í hótelinu. — Nokkru síðar sendi Álfur, sem var skáld gott, höf. kvæði um atburðinn, og getur þar afreksverka allra, er eldinn slökktu, einkum höfundarins, enn minnist eigi sinna eigin. Þetta er svar uppá kvæðið.]


Þú kveður um ysinn og eldinn á jólunum,
Ópin, og glamrið í slökkviliðs tólunum —
Um Guðmund, sem var þá um dýrðina’ að dreyma—
Og dansinn og fljóðin, sem ekki má gleyma —
Um liðið, sem dugði bezt logann að slökkva,
Og ljet ekki dragast úr hvílum að stökkva.
Þú getur um margt þar, en gleymir því mesta,
Sem gamlir og ungir í minni sjer festa:
Að þegar að alt stóð í voðanum versta
Og var ekki tími að líta til gesta,
Þú stóðst uppá lopti, sem ókunnur álfur,

—34—