Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/40

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

Svo andskotinn—hugðu menn væri þar—sjálfur.
En þegar að Helgi var þrotinn að dáðum,
Þorsteinn að hugrekki, kröptum og ráðum,
Þú óðst inni reykinn með ótrauðu þori,
Þó eldurinn glotti í sjerhverju spori,
Og tendraðir ljósið og lýstir þeim sterka,
Sem lúinn og einsamall dugði til verka,
Og lamdi með sleggjunni, líkastur fjandanum,
Löðrandi’ í svita og bljes frá sjer andanum,
Svo gnötruðu viðir og glammrað’ í stálinu;
—Ei getið er þvílíks af Hjeðni í bálinu —
Uns gat kom á loptið og gisnuðu fjalir
Svo glóðvolgir opnuðust brennivíns salir;
En flöskur í vatninu flutu þar tómar,
Svo feng’ ekki dropa’ úr þeim reykþurrir gómar,
Því opnaðar voru þær áður á “ballinu”
Og upp úr þeim sopið um nóttin’ í “rallinu”.
En fyrst það er búið, er bezt því að gleyma—
Um betri jól heldur með Guðmundi dreyma.
En afrek þitt man jeg—í eldinum—Álfur;
Þó ei væri minna sem gjörði jeg sjálfur.
Við skulum þess minnast, því skáld erum báðir
Af skildingum snauðir, en óhöppum fjáðir,
Og skrifast á ljóðum, eins leng’ og við lifum,
Því lesa mun einhver þau kvæð’ er við skrifum.

—35—