Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Og gott er að lifa, og hamast og hvílast,
En helmingi sællla’ er þó moldinni’ að skýlast:
Með Seivi og Appollo sofa í gleymsku,
Og svíkjast í burtu frá mannanna heimsku.
Og kvíða’ ekki Helvítis ógnum og eldi,
Sem engan mann grunar á jóladagskveldi.
En kampavíns uppsprettur eilífar teiga,
Sem aðrir en skáldin ei smakka þá meiga.
Jeg veit að þú skilur, að við eigum gaman,
Að vaka, og drekka og yrkja þar saman.
1896.
—36—