Þessi síða hefur verið prófarkalesin
GUÐNÝ BENÓNÍSDÓTTIR.
Fædd 12. Maí 1893. Dáin 29. Ágúst 1896.[1]
Hve fljótt er opt, að fölnar lífsins blómi,
Hve fjölda margt er umbreytingu háð!
Hve þungt er opt að hlýða drottins dómi,
Hve djúpskilin oss finnast opt hans ráð.
Hve allt er lífið eymdum vafið
Hve ógurlegt og stórt og myrkt er dauðans hafið!
Hve fjölda margt er umbreytingu háð!
Hve þungt er opt að hlýða drottins dómi,
Hve djúpskilin oss finnast opt hans ráð.
Hve allt er lífið eymdum vafið
Hve ógurlegt og stórt og myrkt er dauðans hafið!
Hve sárt er fyrir vini vin að kveðja
Og vandamenn að standa’ á grafar-barm.
Hve fátt vjer getum fundið til að gleðja —
Svo fátt er getur sefað beiskan harm;
Því flest oss virðist fánýtt reynast
Þá fjör og æska og líf ei meiga lengur treinast.
——————

- ↑ Sjerprentað á Ísafirði 1896.
—37—