Þessi síða hefur verið prófarkalesin
En ein er bót í öllum vorum harmi,
Sem ekki bregzt þó renni lífsins sól:
Að flýja’ að drottins föðurlega barmi —
Þar finnum vjer hið öruggasta skjól;
Hann er vort skjól í skúrum nauða —
Vor skjöldur, sverð og brynja gegnum líf og dauða!
Sem ekki bregzt þó renni lífsins sól:
Að flýja’ að drottins föðurlega barmi —
Þar finnum vjer hið öruggasta skjól;
Hann er vort skjól í skúrum nauða —
Vor skjöldur, sverð og brynja gegnum líf og dauða!
Svo hvíl í friði, lífsins litla brúðir,
Sem lögð ert nú í kaldan dánar reit!
Þinn andi lifir ljóssins vafinn skrúði
Á lífsins stól í ódauðleikans sveit,
Þars bernsku þinni ekkert amar
Og umbreyting og dauðastríð ei þekkist framar.
Sem lögð ert nú í kaldan dánar reit!
Þinn andi lifir ljóssins vafinn skrúði
Á lífsins stól í ódauðleikans sveit,
Þars bernsku þinni ekkert amar
Og umbreyting og dauðastríð ei þekkist framar.
Vjer hörmum þig, en helgum Drottni tárin,
Og hjartans síðstu kveðju veljum þjer.
Vjer biðjum guð að græða hjarta sárin,
Og gefa’ oss loks að finna þig hjá sjer,
Þar engra harma’ er meir að minnast —
Þar mæður, feður, börn og systkin aptur finnast.
1896.
Og hjartans síðstu kveðju veljum þjer.
Vjer biðjum guð að græða hjarta sárin,
Og gefa’ oss loks að finna þig hjá sjer,
Þar engra harma’ er meir að minnast —
Þar mæður, feður, börn og systkin aptur finnast.
1896.
—38—