Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/44

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

SKILNAÐARMINNI
Sæmundar S. Guðmundssonar, kennara.

[Drukkið í kampavíni undir beru lopti.]


Þó brosi líf, á bak við leynist hel.
Það ber ei máske alt á sama daginn.
Það koma skúrir — koma stundum jel,
Og kannske fyrr en varir; það er baginn.

Því æskustundin leiftrar eins og ljós
Og líður burtu, fyrr en nokkurn grunar;
 Á blíðu vori bliknað getur rós,
Og björkinni um hverja kælu munar.

Og eins þó höndin hafi krónu ráð
Og hnúar kreptir beri þreytu merkin;
Og þó að skorti hvorki dug nje dáð,
Án drottins vilja blessast ekki verkin.

—39—