Þessi síða hefur verið prófarkalesin
En hann mun fylgja þjer, á þínum veg,
Svo þig ei framar hreki nokkur kylja;
Þú kemst því áfram, eptir braska eg,
Því okkar vegir hljóta nú að skilja.
Svo þig ei framar hreki nokkur kylja;
Þú kemst því áfram, eptir braska eg,
Því okkar vegir hljóta nú að skilja.
En lífið samt jeg hræðist ekki hót
Og held jeg fari ekki neinu að kvíða,
Því sólskin kemur mínum skúrum mót,
Og meiri sælu á jeg þó að bíða.
Og held jeg fari ekki neinu að kvíða,
Því sólskin kemur mínum skúrum mót,
Og meiri sælu á jeg þó að bíða.
En meðan líður lífsins dögg og skin
Og lífs er vegur ei að þrotum genginn,
Jeg þykist eiga þig sem tryggan vin;
Og þá er líka göngustafur fenginn.
Og lífs er vegur ei að þrotum genginn,
Jeg þykist eiga þig sem tryggan vin;
Og þá er líka göngustafur fenginn.
Jeg klýf svo strauminn, beina ryð mjer braut;
Mig brestur hvorki hug, nje þrek og snilli.
Jeg hlæ þá kalt að hverri lífsins þraut
Og höndla máske gleðistund á milli.
Mig brestur hvorki hug, nje þrek og snilli.
Jeg hlæ þá kalt að hverri lífsins þraut
Og höndla máske gleðistund á milli.
En eftir liðna lífsins dögg og skin,
Þá leiðin mikla er til himins gengin;
Jeg þar mun hitta þig, sem gamlan vin,
Og þá er líka sigur lífsins fenginn.
Þá leiðin mikla er til himins gengin;
Jeg þar mun hitta þig, sem gamlan vin,
Og þá er líka sigur lífsins fenginn.
—40—