Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/47

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Í BRÚÐKAUPI.Valdimars Sigurðssonar og Hildar Jónsdóttur.
Karls Sigurðssonar og Sólrúnar Jónsdóttur.
[Brúðgumarnir voru bræður og brúðirnar systur.]

Í austri rís upp röðulgeisli fagur,
Og roðar fjallatinda sumardagur.
   Stengur fánum falda
   Firðar syngja lag;
   Kristnir helgan halda
   Hvítasunnudag.
   Blómgvuð hlíð
   Brosir móti sólu
   Blómgvuð hlíð
   Blárri vaxin fjólu
   Brosir þýð.

Um vanga streymir vindblær ofur þýður,
Og vorsins hljómar kliður, undur blíður.

—42—