Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Fuglar fjaðrir skaka,
Fagran hefja óm;
Tindar undir taka
Tröllalegum róm:
Alt er líf,
Unaður og gleði.
Ekkert kýf.
Eins og rós á beði
Lifir líf.
Og innst í dali fellur geisli fagur,
Því Fjallkonunnar nú er brúðkaupsdagur.
Himinn, frón og flæði
Fagna þessum dag;
Straumar kveða kvæði —
Klettar flytja brag.
Gljúfrin blá
Gleypa minnis veigar;
Björkum frá
Blómgir falla sveigar
Brúði á.
Því Fjallkonunnar nú er brúðkaupsdagur.
Himinn, frón og flæði
Fagna þessum dag;
Straumar kveða kvæði —
Klettar flytja brag.
Gljúfrin blá
Gleypa minnis veigar;
Björkum frá
Blómgir falla sveigar
Brúði á.
Og inni hjer er einnig fjólu dalur,
Því inni hjer er reiddur brúðarsalur.
Hjer er ást og yndi —
Því inni hjer er reiddur brúðarsalur.
Hjer er ást og yndi —
—43—