Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/50

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

SUMARÓSK TIL STÚLKU.

[Skrifað á spjald á sumardaginn fyrsta.]


  Sumardagur — sæll og fagur,
Svásum vafinn geisla hjúpi,
  Unaðs ríkur, engli líkur
Uppúr stíginn Ránar djúpi,
  Óskadagur—alls, sem anda hrærir,
  Ástarkveðju mína til þín færir;
Bál í hjarta, blóm í unga mund,
Blessun hverja þína æfistund.
1898.


—45—