Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/51

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

HALA-KLETTUR.


Uppá hörðum Hala-klett —
  Hæzt á Reyðar-fjalli —
Get jeg tekið lífið ljett,
  Líkur Sprel’li-kalli.

Þar er alt til ununar —
  Ekki neitt, sem grætir.
Mærar endurminningar
  Og margt, sem hugann kætir.

Mjer sem jeg sjái þar
  Sviðið bernsku daga,
Er jeg líkur lambi var
  Og ljek mjer úti haga.

Sama heyri’ eg unaðs óm
  Eima hjer við tindinn,
Eins og forðum fugla róm
  Flýja morgun vindinn.

—46—