Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Hjerna er mín bernsku braut
Blómum stráð og fögur.
Hingað eltir engin þraut —
Engar lyga sögur.
Blómum stráð og fögur.
Hingað eltir engin þraut —
Engar lyga sögur.
Hjerna er jeg eins og barn,
Ýmist hlæ og græt jeg.
Niðrá lífsins helkalt hjarn
Hallast þreyttur læt jeg.
Ýmist hlæ og græt jeg.
Niðrá lífsins helkalt hjarn
Hallast þreyttur læt jeg.
Og Hala-kletti háum á
Hvíli lúnar fætur,
Meðan ægis báran blá
Brotnar fjalls við rætur.
Hvíli lúnar fætur,
Meðan ægis báran blá
Brotnar fjalls við rætur.
Alt þó lífið ygli sig
Eða hlaup’ á spretti,
Tekst því ei að ergja mig
Upp’á Hala-kletti.
Eða hlaup’ á spretti,
Tekst því ei að ergja mig
Upp’á Hala-kletti.
Hugsa verður hver um sitt,
Hver sinn drösul bera.
Það er eina yndið mitt
Einsamall að vera.
Hver sinn drösul bera.
Það er eina yndið mitt
Einsamall að vera.
Því um mæra morgunstund,
Mitt í lífsins vöku,
Mitt í lífsins vöku,
—47—