Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/53

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

Til að brýna ljetta lund
  Læt jeg fljúga stöku.

Nú er mjer svo ljett um ljóð
  — Lagar bjöllur hringja —
Að kveðið gæt’ eg Íslands óð
  Ef einhver vildi syngja.

Nú er mjer svo ljett um ljóð
  — Læknast hryggur brotinn —
Að kveðið gæt’ eg ástar óð,
  Ef jeg væri skotinn.

Nú er mjer svo ljett um ljóð
  — Losna tungu böndin —
Að kveðið gæt’ eg alheims óð,
  Ef jeg þekti löndin.

Samt þó mjer sje ljett um ljóð
  Leiðist mjer að skrifa,
En seinna mun jeg yrkja óð,
  Ef jeg fæ að lifa.

Heill þjer, mikla hamra tröll,
  Halaklettur fríði!
Öll jeg vild’ að Íslands fjöll
  Ættu þína prýði.

—48—