Þessi síða hefur verið prófarkalesin
EINTAL.
“Það er svo sælt að sitja ein
Og svala hjartans þrá —
Með beiskum tárum mýkja mein
Og mædda væta brá.
Það huggar langbest hrelda sál
Að hlust’ á eilíft þagnar-mál.”
Og svala hjartans þrá —
Með beiskum tárum mýkja mein
Og mædda væta brá.
Það huggar langbest hrelda sál
Að hlust’ á eilíft þagnar-mál.”
“En sælt það líka eflaust er
að eiga vin á braut,
Að hlýjum barmi halla sjer
Í hverri lífsins þraut;
Það er þó satt”—svo sagði mey,
“Jeg sjálf hef reynt það—veit þó ei.”
að eiga vin á braut,
Að hlýjum barmi halla sjer
Í hverri lífsins þraut;
Það er þó satt”—svo sagði mey,
“Jeg sjálf hef reynt það—veit þó ei.”
Jeg sagði fátt, en vissi vel
Hvert var hið rjetta svar.
Jeg skildi öll þau ama jel,
Sem innst í sál hún bar.
Hvert var hið rjetta svar.
Jeg skildi öll þau ama jel,
Sem innst í sál hún bar.
—50—