Þessi síða hefur verið prófarkalesin
VIÐ LAGAR-FLJÓT.
Já, það var hjer, sem háð var Þórsness þing
Og þjóðhöfðingjar stóðu að víga-málum;
En Veigar glóð’ á gullibúnum skálum
Og risna bjó, er riðu hetjur kring.
Já, það var hjer, að búinn stóð’u í blóma
Er bændur átu fisk og kjöt og smjer.
Því stráir Saga feitum frægðar ljóma
Á forna tíð, sem öldum hulin er.

Því horfin er hin forna Hjeraðs frægð
Og falin — gleymd, í löngu auðum rústum.
Og björkin tínd í bleikra stöngla þústum
— Af endurminning aðeins finnst hjer nægð.
En fljótið eitt er eins og það var forðum,
Og enn er sveitin nokkuð kinda-rík!
Og guðinn hjerna gengur ekk’ úr skorðum.
— Og gömul er nú „hreppa-pólitík“!

—54—