Þessi síða hefur verið prófarkalesin
MAMMA.
[Til Þuríðar Andrjesdóttur á 70 ára afmæli hennar, undir nafni dóttur hennar, konu höf.]
Í dag, jeg — mamma, minnast vil á þig,
Sem margoft hefur glatt og huggað mig;
Og líta með þjer yfir öll þau ár,
Sem átt’ jeg með þjer, vonir, bros og tár.
Sem margoft hefur glatt og huggað mig;
Og líta með þjer yfir öll þau ár,
Sem átt’ jeg með þjer, vonir, bros og tár.
Hvert augnablik á bernsku minnar tíð
Þú barðist vegna mín og háðir stríð,
Og vegna þess, með þreytu mark á brá
Er þjer í dag að heilsa ellin grá.
Þú barðist vegna mín og háðir stríð,
Og vegna þess, með þreytu mark á brá
Er þjer í dag að heilsa ellin grá.
Við barminn þinn mitt bljúga hjarta sló,
Við barminn þinn var lífs mins dýpsta ró;
Við barminn þinn jeg átti beztann blund,
Við barminn þinn mín fyrsta sælustund.
Við barminn þinn var lífs mins dýpsta ró;
Við barminn þinn jeg átti beztann blund,
Við barminn þinn mín fyrsta sælustund.
Við barminn þinn jeg bænir mínar las;
Við barminn þinn jeg tæmdi litið glas.
Við barminn þinn jeg tæmdi litið glas.
—56—