Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/62

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

Við barminn þinn ið bezta fann jeg skjól;
Við barminn þinn jeg guði líf mitt fól.

Við barminn þinn jeg lasin stundum lá;
Er læknishjálp var ekki nein’ að fá;
Við barminn þinn jeg fjekk þá hvíld og fró —
Jeg fann að vegna mín þitt hjarta sló.

Að minnast þín ,er mjer því ljúft og skylt.
Þó mörgu sje nú bæði gleymt og spilt,
Jeg man og þakka öll hin liðnu ár
Og allar bænir, fyrirhyggj’ og tár.

Og með þjer á jeg eptir sælustund —
Og enn jeg fæ að sofna hjá þjer blund.—
Í æsku þegar ellin breytist þín
— Í eilífðinni, hjartans mamma mín!
1900.


—57—