Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/63

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

HUGSANIR DEYJANDI DRYKKJUMANNS.


[Sagan, sem kvæði þetta er endirinn á, er sönn, og er í stuttu máli þessi: Fátækur, efnilegur iðnaðarmaður festir ást á ungri stúlku, og kvongast henni. Hann hefur byggt þeim ofurlítið hús, sem er fátæklegt, en fult af ánægju. Þau eignast tvö börn, dreng og stúlku. Síðar hneigist hann til vínnautnar, sem verður brátt að ofdrykkju. Konan, sem altaf var veikbygð, þolir ekki það böl og andstreymi, sem af því leiðir, veikist, örmagnast og deyr. Hann býr með börnunum, sem enn eru ung. Kvöld eitt, er hann kemur heim, drukkinn að vanda, misþyrmir hann drengnum svo, að hann bíður bana af. Stúlkan er þá tekin frá honum, en hann býr einn í kofanum mörg, löng ár, unz hann finnst þar örendur eptir langar þjáningar, er hann hafði liðið einn og yfirgefinn af öllum.]

I.

Hann vakir aleinn um vetrar nótt.
Í veðrinu hvín, á frosinn glugga
Hafa máninn og tindurinn markað skugga.
Það er enginn hjá ’onum. Alt er rótt.

—58—