Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/64

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

Kvalirnar eru nú orðnar vægari,
Ennið er drifið köldum svita;
En fyrir brjóstinu finnur ’ann hita,
Samt eru stunurnar heldur hægari.

Hvers vegna er nú ekki kveikt?
Hví er enginn heima hjá veikum manni?
Burt eru flúin börn og svanni.
Hann rís upp við koddann og kallar veikt:
“Á jeg að liggja hjer þyrstur og þreyjandi
Þangað til úr mjer er allur styrkur?
Það er svo voðalegt þetta myrkur!
Heyrið þið ekki’ að jeg hrópa nú þegjandi?

“Hvað! Er enginn hjá mjer á hinstu nótt —
Er það hefnd, sem ógnar í mánans skini?
Á jeg nú loksins enga vini?
Vill ekki guð að mjer verði rótt!
Koma nú allir, sem ætla að hefna sín?
— Ekk’ er nú fyrir litlu barist—!
Það er ónýtisför, jeg get ekki varist.
Ódáðaverkin — þið megið ei nefna — mín.

“Sagðirðu nokkuð, Siggi minn —
Sefurðu þarna í rúminu þínu?
En hvað er nú orðið af henni Stínu?

—59—