Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/65

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

Statt’ upp og komdu nú, strákurinn þinn.
Flýttu þjer, — jeg þarf að fá eitthvað svalandi;
Farðu og sæktu mjer vatn að drekka.
Hvað gengur að þjer, hví hefurðu ekka?
—Ansaðu, drengur, eð’ ert’ ekki talandi!

“Komdu nú hingað og hagræddu mjer —
Hjálpaðu nú honum pabba þínum;
Svalaðu þorstanum sárasta mínum —
Legðu nú höndin’a í lófann á mjer.
Þjer er óhætt að koma, jeg ætl’ ekk’ að berja þig.
Þú átt að standa hjá rúminu mínu
Og segja mjer ef þú sjerð hana Stínu.
Þú þarft ekk’ að halda upp höndinn’ og verja þig.

“Þú ert ekki sofandi, Siggi minn!
Jeg sje þú ert dauður, í blóðugu rúminu.
Ertu nú kominn hingað í húminu
Að hefna þín — kvelja hann pabba þinn?


*⁠*⁠*


Þú vilt ekki hefna þín. — Blessað barnið!
Jeg barði þig þar til þú hættir að veina.

—60—