Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Í stórviðr’ á stjórnlausu fleyi.
Já, einmana hrekst jeg um harmanna ver;
Þó hjálp sje í landi, sem benda vill mjer
Og hrópi. — Jeg heyri það eigi.
“Hún hrópar—hún hrópar!—Jeg heyri það nú.
Hún hrópar og segir að rjettlæt’ og trú
Sje bjargráð, sem boðana lægi.
En hvert skal þá halda, og hvar fæ jeg höfn,
Því hvar eru strandir við táranna dröfn,
Og hvenær ætl’ ofviðrið hægi?
Hún hrópar og segir að rjettlæt’ og trú
Sje bjargráð, sem boðana lægi.
En hvert skal þá halda, og hvar fæ jeg höfn,
Því hvar eru strandir við táranna dröfn,
Og hvenær ætl’ ofviðrið hægi?
“Í landið jeg grilli en sje ekki sund.
Mjer svíður í hjartanu blóðþrungin und,
Og völt er nú stjórnin og vonin.
Jú—þarna er vitinn, og þangað jeg held
Og þar vil jeg lenda og gista í kveld.
— En hvern mun jeg hitta þar—soninn?
Mjer svíður í hjartanu blóðþrungin und,
Og völt er nú stjórnin og vonin.
Jú—þarna er vitinn, og þangað jeg held
Og þar vil jeg lenda og gista í kveld.
— En hvern mun jeg hitta þar—soninn?
“Því borg er á ströndinni heilög og há,
Svo hvílík er nein ekki jörðunni á.
Hve heppinn jeg var að jeg venti!
Og guð vill mig taka í sáttir við sig —
Hann Siggi minn er þar og bað fyrir mig.
Með hans var það hjálp, að jeg lenti.
Svo hvílík er nein ekki jörðunni á.
Hve heppinn jeg var að jeg venti!
Og guð vill mig taka í sáttir við sig —
Hann Siggi minn er þar og bað fyrir mig.
Með hans var það hjálp, að jeg lenti.
—62—