Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/68

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

*⁠*⁠*


“Og svo get jeg brosað og sofnað í ró—
Hann Siggi minn gjörði það leið og ’ann dó,
Því hann var svo barnslega blíður.
Jeg sje hann nú bráðum; hann signir mig þá!
Hann Siggi minn horfir mitt dauðastríð á.
Það er nokkuð langt — en það líður.”

III.

Við kirkjun’ á Hálsi í helgum reit
Nú hvílast hans lúin bein.
Gröfin læknar öll manna mein.
En minningin lifir, og orðstír hins látna
fer sveit úr sveit.

Nú eru liðin víst átján ár,
Og ýms’u er á skemmri stund gleymt.—
En margan hefur um morðið dreymt,
Því minningin lifir, um svívirðing, angist
og sár og tár.

Við kirkjun’ á Hálsi er hlaðin þró
Og höggvið í lítinn stein:

—63—