Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/69

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

“Gröfin læknar öll manna mein,
Því móðir og faðir og sonurinn finna
hjer fró og ró.”

Og flestir, sem kom’ í þann kirkjugarð,
Klökkna við þessa gröf.
— Djúpt er vað’ yfir dauðans höf!
En drottinn sjer optar og meira en þarna
margt skarð, er varð.

Við Kirkjun’ á Hálsi er hringt í kvöld —
Þar hvílast hans lúin bein.
— Gröfin læknar öll manna mein,
En margar eru hugsanir deyjandi drykkju-
mans, öld af öld.
1901.


—64—