Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Sjerhver valdsmaður, sæti og trausti rændur,
Situr heima að rýn’a í gömul skjöl.
Margt það er, sem við ættum að gera,
Ekki dugar nú heimskur að vera;
En í leynum við verðum samt að vinna það,
Annars vitringarnir koma strax og finna það.
“Stóra fjelagið” nú bráðum fer að baka
Stærri bollur en þriggja marka skál;
Allir bændur þar brauðin ætt’ að taka
— Bara’ að vonirnar reynist ekki tál.
Engar gullfúlgur útlendar viljum,
Okkar banka við þekkjum og skiljum;
Bara’ að landstjórnin bæti ögn við Seðlana,
Og hún “býtti” þeim við Gránufjelagsbleðlana.
Stærri bollur en þriggja marka skál;
Allir bændur þar brauðin ætt’ að taka
— Bara’ að vonirnar reynist ekki tál.
Engar gullfúlgur útlendar viljum,
Okkar banka við þekkjum og skiljum;
Bara’ að landstjórnin bæti ögn við Seðlana,
Og hún “býtti” þeim við Gránufjelagsbleðlana.
Yfir Pollinn má endilangan keyra
Ef að bjöllurnar gjalla nógu hátt,
Því að síldin er alveg hætt að heyra —
Henn’ er sama þó verðið standi lágt.
Enginn þarf nú að skjótast á skautum,
Lífið skeiðar á framfara brautum.
Upp’í “Figaro” má finna skjól í frostunum,
Já, þeim fjölgar hjerna á Akureyri—kostunum.
1902.
Ef að bjöllurnar gjalla nógu hátt,
Því að síldin er alveg hætt að heyra —
Henn’ er sama þó verðið standi lágt.
Enginn þarf nú að skjótast á skautum,
Lífið skeiðar á framfara brautum.
Upp’í “Figaro” má finna skjól í frostunum,
Já, þeim fjölgar hjerna á Akureyri—kostunum.
1902.
—66—