Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/74

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Ei skal þó aptur snúið.
Út skal á kaldan mar!
Var ei frá vígum flúið,
Viljinn mig hingað bar.
Hjartað á eptir heima
Hrjóstrin og blómin öll.
Deyjandi mun mig dreyma
Dalinn, og þessi fjöll.

Nú þekki jeg storminn stríða
Er strauk minnar bernsku kinn;
Sem móður hönd mjúka — blíða,
Er mælt’ hún við drenginn sinn:
“Vertu því veika styrkur,
Vertu því nakta skjól;
Ljós, þegar leggst að myrkur,
Lágnætti hverju sól.”

*⁠*⁠*

Áfram á æginn kalda —
Áfram á lífsins dröfn!
Áfram, um raðir alda!
Áfram, unz náð er höfn!
Áfram til árs og friðar,
Áfram í gleð’ og þraut!
Áfram, unz öllu miðar
Áfram á lífsins braut.
1903.

—69—