Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/75

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

BARNIÐ MITT.

[Kristín, dóttir höf., dó á fyrsta ári. Kveðið undir nafni móðurinnar.]


Blómið fjell, en stofninn stendur —
  Stórt var þetta jel!
Er það víst, að herrans hendur
  Hagi öllu vel?
Mátti dauðinn hrjá og hrekja
    hjarta blómið mitt —
  Blessað barnið mitt?

Var mjer skylt að skila aptur
  Skaparanum — gjöf?
Gat ei drottins dýrðar kraptur
  Dauðann lagt í gröf?
Gat hann ekki látið lifa, litla barnið sitt —
  Blessað barnið mitt?

—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—

—70—