Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/77

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

TÍMAMÓT.

[Kveðið eftir að hafa lesið 3 almanök: Þjóðv. fjel., Ó. S. Th. og S. B. Ben.]


Þó reynum við að stíga styztu sporin,
Þá stendur jafnan meginhlutinn kyr;
Svo jafnvel eru að verða styttri vorin
Og vetrar lengri en nokkru sinni fyr.
Því “gömlu árin” altaf koma aftur —
Með Almanaki hverju — þáleg tíð.
Úr frels’ og manndáð flúinn allur kraftur
Og flestra von að heyja dauðastríð.

Og vilji einhver ekki halda hópinn,
En herj’i á undan , brjóti vanans ís,
Menn benda á hann og segja: Sjáið glópinn!
Þeim sjálfbyrging er talinn dauðinn vís.
Því sjert þú ekki alveg eins og hinir —
Með alveg sömu játning eins og þeir,

—72—