Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Þá munu fáir verða þínir vinir,
Og vægast sagt: það getur kostað meir.
En nú er mál þann Álfaklett að kljúfa,
Sem kveikti margra alda villu ljós;
Og gömlu heitin hljótum við að rjúfa,
Um hjátrúnað á Þurs og Álfadrós.
Hið gaml’ er feigt, þess forlög eru að deyja,
Því framar ljótt vill enginn maður sjá.
Hið nýja er ungt, en á það stríð að heyja,
Sem okkar líf og sigur byggist á.
Sem kveikti margra alda villu ljós;
Og gömlu heitin hljótum við að rjúfa,
Um hjátrúnað á Þurs og Álfadrós.
Hið gaml’ er feigt, þess forlög eru að deyja,
Því framar ljótt vill enginn maður sjá.
Hið nýja er ungt, en á það stríð að heyja,
Sem okkar líf og sigur byggist á.
***
Svo reynum þá að stíga stóru sporin.
Nú standi enginn góður drengur kyr!
Og þá er víst að verða lengri vorin,
En vetrar styttr’i en nokkru sinni fyr.
Þá koma gömlu árin aldrei aftur;
Hvert Almanak mun boða nýja tíð,
Úr læðing vanans leysast mannsins kraftur
Og loksins vinnast sigur — þverra stríð.
1904.
Nú standi enginn góður drengur kyr!
Og þá er víst að verða lengri vorin,
En vetrar styttr’i en nokkru sinni fyr.
Þá koma gömlu árin aldrei aftur;
Hvert Almanak mun boða nýja tíð,
Úr læðing vanans leysast mannsins kraftur
Og loksins vinnast sigur — þverra stríð.
1904.
—73—