Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/79

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

SJÓMANNSEKKJAN.


I.

 Nætur lengjast, dvína dagar,
 Dimmir, kólnar, lækkar sól.
 Stofnar blikna, stormur bagar,
 Stirðna lækir, fækka skjól.
 Jörðin klæðist klaka hjúpi,
 Kvakar lóan hinzta sinn.
 Öldur rymja dimt á djúpi,
 Dapur vetur læðist inn.

 Allar vorsins vonir flýja,
 Vaknar kvíð’i í brjósti manns.
 Herferð skal nú heyja nýja
 Hver og einn, til sjós og lands.
 Marga vantar björg í búið,
 Börnin soltin haf’ ei ró.
 Ekki verður annað flúið
 En að reyn’ að far’ á sjó.

—74—