Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/80

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
 Þá er stundum kátt í koti.
 “Kemur pabbi heim með fisk”!
 Börnin öll með iði’ og poti
 Eru að reyn’ að ná í disk,
 Til að leggj’ á lítinn bita
—Lengi’ er mamm’a að sjóða, þá—
 Þau finn’ ei bragðið fyrir hita,
 En fullvel smakkast rjettur sá.

II.

Snemma á Þorra er snjór yfir alt.
— Snögg eru umskift’i á jörð.
Þó oft komi sólskin, er óðara kalt,
Og altaf er tíðin svo hörð.
Dimt er í kofanum, döpur er hún,
Sem dvelur þar alein um nótt;
Og mörg er á vanganum mótlætis rún.
Hún mælti við sjálfa sig hljótt:

“Hvað er nú langt síðan maðurinn minn
Í mannskaða veðrinu dó?
Loftið var heiðríkt og hafræna stinn,
Og hann var þá fyrstur á sjó.
Hann kysti mig ekki, sem venja hans var,

—75—