Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/81

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

— Hann var að flýta sjer þá—,
En færið og árarnar útí hann bar
Og ýtti svo landinu frá.

Hann ásað’ út seglið og súðunum á
Ljek sæfroð’ í hagstæðum byr.
Hann hamlað’ og stýrði, er seinast jeg sá
— Jeg sá hann oft gjöra það fyr.
Því háseta ekki hafð’ ’ann neinn.
— Við höfðum ei vinnumann.—
Þessvegna reri ’ann altaf einn,
En oftast fiskaði hann.

Um hádegis bilið var heiðskírt og bjart,
Og hann var þá langt útá sjó.
Að lítilli stundu var loftið alt svart,
En logn var til djúpanna þó.
Þokan á tindinum hreykti sjer hátt,
Og hún spáði stórviðri skjótt;
En aldan við ströndina stundi svo lágt
— Hún stundi þá líkt og í nótt.

Það beið ekki lengi að brast á með vind,
Svo brakaði kofanum í.
Það hvein þá í stráunum, hjarni og tind;
Svo harnaði veðrið á ný.

—76—