Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/82

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

Jeg hljóp út að gæt’ hans, mig grunaði þá
Hann gæt’ ekki landinu náð;
En aðeins jeg rokið og öldurnar sá.
Og oft hef jeg síðan gáð!

En það er til einskis, því enga fjöl
Hefur ennþá rekið á Sand.
— Hann hefur þó líklega komist á kjöl
Og kallað og hrópað í land!
Jeg veit það nú líka það heyrst hefur heim,
Og hann er nú laus við sín mein.
En sveitin tók börnin og sjer fyrir þeim,
Og svo má jeg þreyja hjer ein.

Það drukknuðu margir þann mannskaða dag.
Það misstu þá fleiri en jeg
Ástvini sína — þann sama dag —
Samt enginn eins mikið og jeg!
Og hvað er nú langt síðan — líklega ár?
— Ef líkið hans ræki af sjó
Þá gæti jeg þerrað mín trega tár
Og talað um þetta með ró.


*⁠*⁠*


—77—