Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/85

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

Þú mattir ekki heimsins hleypidóma,
Þú hirtir meir um köllun þín’ og sóma:

Að benda, leiða, láta aðra skilja
Að list er mest að hlýða betri vilja.
Að hjálpa, gleðja, hugga, styðja veika,
Í hópi glaðra vera barn og leika.

Að þekkja og skilja lífsins leyndardóma;
Að leggja ráð til framkvæmdar og sóma
Að hugsa margt, en hafa fátt að segja,
Sem hetja lifa, en eins og barn að deyja.

Að vekja dyggð og hreyst’ í hvers manns huga,
Og hverja þraut með elju og dáð að buga.
Að halda stefnu, stýra yfir boðann;
Að stilla skapið, hræðast ekki voðann.

En þar kom loks, að þreytan aflið lúði,
Og þig á boðann stormur lífsins knúði.
Þú sást í skýjum geysi storma glæðast,
En göfga hjartað kunni ekk’ að hræðast.

Þú fannst þinn bátur var að verða lekur,
En vissir að þú fyndist hvergi sekur.

—80—