Þessi síða hefur verið prófarkalesin
FALLNA STÚLKAN.
I.
Hver sólskins dagur, hver sælu stund,
Hver svipur, er líður hjá,
Hver gálaus athöfn, hvert gull á mund,
Hvert glóandi tár á brá,
Hvert blíðlegt andsvar, hvert bros á vör,
Hver barnsgleði stund um jól,
Hver pálmagrein — verður heiftar hjör,
Ef hjartað á ekkert skjól.
Hver svipur, er líður hjá,
Hver gálaus athöfn, hvert gull á mund,
Hvert glóandi tár á brá,
Hvert blíðlegt andsvar, hvert bros á vör,
Hver barnsgleði stund um jól,
Hver pálmagrein — verður heiftar hjör,
Ef hjartað á ekkert skjól.
II.
Ströndin er auð.
Steinar liggja í fjörunni — þeir er’ ekki brauð.
Bylgjurnar ýlfra og ymja,
Álengdar bergstallar rymja.
Ströndin er auð.
Hve dapurt er kvöldið og dauðaleg nóttin!
Steinar liggja í fjörunni — þeir er’ ekki brauð.
Bylgjurnar ýlfra og ymja,
Álengdar bergstallar rymja.
Ströndin er auð.
Hve dapurt er kvöldið og dauðaleg nóttin!
—83—