Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/89

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

    Í dimmunni alt
Leitar sjer skjóls, nema angrið og óttinn.
    “Mjer er svo kalt!

    Ströndin er auð —
Jeg stend líka alein, svo bágstödd og snauð!
Að baki er barnið mitt grafið —
Blasir við, framundan, hafið —
    Ströndin er auð.
Ekkert er lifandi angrin’ að svala
— Ekkert, er rjetti mjer hönd.
Enginn, sem vinarorð til mín vill tala.
— Til hvers er þessi strönd?
Á hún að syngja líksöngs lag
Yfir litla barninu mínu
Nótt eftir nótt, og dag eftir dag?
— Jeg dey með barninu mínu!
—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—

III.

    Ströndin er auð —
Jeg star’ útá hafið heldimmt og kalt.
— Jeg hlýt að deyja og skilja við alt!
    — Ströndin er auð!
Hvers vegna fór hann á brott svo brátt —

—84—