Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/90

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

Á brott, útá hafið, svo kalt?
Hann vissi þó jeg hlyt’ að eiga svo bágt
Alein, að stríða við alt.
— Nei einsömul var jeg þó ekki með sann,
Því áður rjett en hann fór,
Drengurinn fæddist — svo feitur og stór
Og fallegur — rjett eins og hann.

    Hann vild’ ekki sjá hann!
Hann sór fyrir drenginn á þing’ og í kór
— Og síðan á burtu á flótta hann fór —
    En eg veit hann á hann.
Þó glóhærði drengurinn liggi nú lágt,
Liðinn og stirnaður nár,
Þá hrópa til drottins mín harma tár,
Því hann veit að jeg á bágt.
En svikarinn — flúinn í framandi land —
Hann fær ekki griða stað,
Því tárin mín hróp’ ’onum hefnd fyrir það
Meðan hreyfist bára við sand!
—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—
—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—

Drottinn! Já, drottinn — því hann er þó hjer —
Hann veit að jeg á bágt.

—85—