Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Forðast hann þá, sem að falla lágt —
Eða fyrirgefur hann mjer?
Jeg veit að jeg hrasað’i, en jeg hef þá trú
Að jeg haf’ ekki drýgt neina synd.
Jeg vissi það ekki. — Jeg var þá blind —
Jeg veit það alt betur nú.
Að jeg haf’ ekki drýgt neina synd.
Jeg vissi það ekki. — Jeg var þá blind —
Jeg veit það alt betur nú.
Jeg veit nú jeg hrasað’ og það veizt þú,
Og því er jeg nú svo smá.
Það smáðu mig allir, sem þekktu mig þá;
Það þekkir mig enginn nú.
—————————
—————————
Og því er jeg nú svo smá.
Það smáðu mig allir, sem þekktu mig þá;
Það þekkir mig enginn nú.
—————————
—————————
IV.
Ströndin er auð —
Einmana stend jeg og star’ útá hafið.
Á landi er alt, sem jeg átti, nú grafið.
Ströndin er auð!
Hjer er svo rólegt, — svo himneskur friður!
Hfaldan krýpur með lotningu niður.
Hún er að sýna mjer hluttekning sína.
— Hún getur þvegið burt ógæfu mína!
Einmana stend jeg og star’ útá hafið.
Á landi er alt, sem jeg átti, nú grafið.
Ströndin er auð!
Hjer er svo rólegt, — svo himneskur friður!
Hfaldan krýpur með lotningu niður.
Hún er að sýna mjer hluttekning sína.
— Hún getur þvegið burt ógæfu mína!
***
—86—