Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Hjer eiga sjógyðjur hallir og göng.
Hjer vil jeg kafa í öldunum bláu;
Ferðast um höfin með fiskunum smáu,
Farmanninn hylla með unaðs söng.
Hjer vil jeg kafa í öldunum bláu;
Ferðast um höfin með fiskunum smáu,
Farmanninn hylla með unaðs söng.
Og bakvið hafið er efalaust eyja ,
Með aldinum, vötnum, og lækjum og rósum,
Og höllum og turnum, sem ljóma af ljósum,
— Þar vil jeg una og aldrei deyja!
Með aldinum, vötnum, og lækjum og rósum,
Og höllum og turnum, sem ljóma af ljósum,
— Þar vil jeg una og aldrei deyja!
Svo þegar hnígur sólin í æginn,
Þá svíf jeg um hafið að þessari strönd ,
Í brúðar skarti, með blóm í hönd,
Og breiði á leiðið mitt litla við bæinn.
Þá svíf jeg um hafið að þessari strönd ,
Í brúðar skarti, með blóm í hönd,
Og breiði á leiðið mitt litla við bæinn.
Þau blóm munu vaxa og verða þar lundur
Til minnis um drenginn, sem merkilegt undur.
Og þar mun jeg syngja mín sumar kvæði,
Og sitja hjá drengnum mínum í næði
Til minnis um drenginn, sem merkilegt undur.
Og þar mun jeg syngja mín sumar kvæði,
Og sitja hjá drengnum mínum í næði
Svo þegar morgnar og menn far’ að klæðast,
Þá mun jeg hjer ofan ströndina læðast
Og steypa mjer kollhnís í himinblátt hafið!
—————————
Hjer skal mitt síðasta böl verða grafið!”
Þá mun jeg hjer ofan ströndina læðast
Og steypa mjer kollhnís í himinblátt hafið!
—————————
Hjer skal mitt síðasta böl verða grafið!”
—87—