Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/94

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

DROTTINN.


Í skýjum og dufti, um hauður og haf,
Þitt hátignar alveldi skín.
Sá neisti af ljósi, sem lífið mjer gaf,
Hann leiftrar nú, drottinn til þín!
Jeg veit það nú fyrst , jeg er vesall og lág’r,
Og vanmáttug barns-sálin mín;
En spekin þín sædjúp og himin þinn hár
Og hjarta mitt smátt, en það slær
     og það kvakar til þín!
1908.


—89—