Þessi síða hefur verið prófarkalesin
SUMARMÁL.
Það rís upp hvert líf þegar röðullinn skín.
Það reigist hver eik þegar stormurinn hvín.
Hver dögg flytur gróður í dalinn.
Ef slekkurðu ljósin, þá lykur þig nótt,
Og leggirð’ í orustu, en hafir ei þrótt,
Þá flýrð’ eða fellur í valinn.
Það reigist hver eik þegar stormurinn hvín.
Hver dögg flytur gróður í dalinn.
Ef slekkurðu ljósin, þá lykur þig nótt,
Og leggirð’ í orustu, en hafir ei þrótt,
Þá flýrð’ eða fellur í valinn.
Þessvegna — viljirðu vera til gagns,
Vinnandi partur hins eilífa magns —
Þá verðurð’ að vaka og starfa.
Hver orsök, er myndarðu, afleiðing ber;
Og árangur fylgir — hvort nokkur það sjer —
Ef unnið er eitthvað til þarfa.
Vinnandi partur hins eilífa magns —
Þá verðurð’ að vaka og starfa.
Hver orsök, er myndarðu, afleiðing ber;
Og árangur fylgir — hvort nokkur það sjer —
Ef unnið er eitthvað til þarfa.
Það liggja svo ótalmörg ósprottin fræ
Á útkjálkum heims og í menningar bæ,
Sem fjellu við frostið og bylinn.
Ef mæta þeim sumarmál, sólskin og regn,
Og sjálfstæði skýlir þeim vorhretum gegn,
Þau lifna við ljósið og ylinn.
1910.
Á útkjálkum heims og í menningar bæ,
Sem fjellu við frostið og bylinn.
Ef mæta þeim sumarmál, sólskin og regn,
Og sjálfstæði skýlir þeim vorhretum gegn,
Þau lifna við ljósið og ylinn.
1910.
—90—