Þessi síða hefur verið prófarkalesin
ALDARMINNING
Jóns Sigurðssonar forseta.
1811—17. Júní—1911.
I.
Ósofinn röðull á eldborgir skin,
Ilmur frá birkilaut stígur;
Þokan í hlíðunum þokast og dvín,
Þröstur úr hreiðrinu flýgur.
Dunar í bjargskorum, brunar fram gil,
Bláklukk’ úr hýðinu raknar,
Gullnum slær roða á grundir og þil;
Guðsmyndin stækkar og vaknar.
Ilmur frá birkilaut stígur;
Þokan í hlíðunum þokast og dvín,
Þröstur úr hreiðrinu flýgur.
Dunar í bjargskorum, brunar fram gil,
Bláklukk’ úr hýðinu raknar,
Gullnum slær roða á grundir og þil;
Guðsmyndin stækkar og vaknar.
Smátt eins og stórt veitir lífinu lið;
Lokkast nú hjarðir um dali.
Kyrrðin er rofin, því vorlætin við
Vakna jafnt prestur og smali.
Alt, sem að lifir, sjer eignar þann dag,
Lokkast nú hjarðir um dali.
Kyrrðin er rofin, því vorlætin við
Vakna jafnt prestur og smali.
Alt, sem að lifir, sjer eignar þann dag,
—91—