Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Og óskar að hann verði fagur;
Svo yfir þá lífsþrá og unaðar hag
Skein íslenzkur náttleysu dagur.
En það var sá dagur, sem fagnaði Frón
Og fólkið var eftir að bíða.
Það fann í sjer manninn, er fæddur var Jón —
Það fann hjá sjer mátt til að stríða.
Nú barðist það einhuga, vissi það vel
Að völdum þó “danskurinn” sæti,
Þá væri nú kominn sá Immanúel,
Sem endur-reist þjóðina gæti.
***
Hann lifði og starfaði — leiddi sinn her —
Og landið og þjóðina varði.
En það, sem er ógjört og aflaga fer,
Er eyða í foringjans skarði.
Því hetjan er liðin, og liðin hans öld,
— En lífið er eilfur kraftur,
Sem þekkir ei dauða nje kör eða kvöld —
Nú kemur hann til okkar aftur!
Og fólkið var eftir að bíða.
Það fann í sjer manninn, er fæddur var Jón —
Það fann hjá sjer mátt til að stríða.
Nú barðist það einhuga, vissi það vel
Að völdum þó “danskurinn” sæti,
Þá væri nú kominn sá Immanúel,
Sem endur-reist þjóðina gæti.
***
Hann lifði og starfaði — leiddi sinn her —
Og landið og þjóðina varði.
En það, sem er ógjört og aflaga fer,
Er eyða í foringjans skarði.
Því hetjan er liðin, og liðin hans öld,
— En lífið er eilfur kraftur,
Sem þekkir ei dauða nje kör eða kvöld —
Nú kemur hann til okkar aftur!
II.
Velkominn sjertu, vinur landsins bezti,
Að vitja fólksins eftir hundrað ár!
Að vitja fólksins eftir hundrað ár!
—92—